top of page

Heildarlausnir í jarðvinnu og malbikun fyrir húsfélög

Þjónusta við húsfélög

Við hjá EMKAN bjóðum upp á alhliða þjónustu fyrir húsfélög, þar á meðal malbikun, jarðvinnu og yfirborðsfrágang. Við vinnum náið með húsfélögum og leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð og góð samskipti.

Við bjóðum upp á heildarlausnir þar sem við sjáum um allt ferlið frá upphafi til enda. Húsfélög þurfa því ekki að leita til margra verktaka, heldur fá alla þjónustu á einum stað.

Við skipuleggjum og framkvæmum verkið í samstarfi við trausta aðila og getum gefið heildartilboð í verkefnið. Þannig verður ferlið einfaldara, skilvirkara og oft hagkvæmara.

Markmið okkar er að skila vönduðu verki sem uppfyllir þarfir hvers húsfélags og tryggir góða og endingargóða niðurstöðu.

  Algeng verkefni fyrir húsfélög sem við sinnum   

• Malbikun bílaplana og innkeyrslna  
• Hellulögn á stéttum og sameiginlegum svæðum  
• Steypa á stéttum og gangstígum  
• Jarðvinna og undirvinna  
• Endurnýjun drenlagna
• Uppsetning djúpgáma  
• Uppsetning hleðslustöðva fyrir rafbíla  
• Snjómokstur og viðhald  
• Bílastæðamálun  

Við aðlögum hvert verkefni að þörfum húsfélagsins og leggjum áherslu á hagkvæmar og endingargóðar lausnir. Hafðu samband við okkur í dag og fáðu tilboð í þitt verkefni.

© 2020 by EM with Wix.com

  • Facebook

Fylgstu með okkur

bottom of page